Home

 

VEGFERÐ

Ásta Ólafsdóttir

21. nóvember-17. desember 2010

Ásta Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík 1948. Hún stundaði myndlistarnám í Myndlist- og Handíðaskóla Íslands og Jan van Eyck Akademíunni í Hollandi.

Á sýningunni fjallar Ásta um þróun og framhald sem nefnt er á tyllidögum „vegferð“. Vegferð lands og þjóðar, einstaklinga, samtaka, stofnana og svo framvegis. Vegferð getur verið á hvorn veginn sem er; heilladrjúg eða endað með ósköpum. Engin er vegferðin án samskipta og hreyfiafls. Þegar hlykkur kemur á ferð þessa er vissara að hafa ekki hátt um væntanlega vegferð eins né neins.

Sýningin tiplar á tánum fram hjá vanabindandi skilyrðum og skimar inn í upplausn veruleikans í leit að glufu til að smeygja sér út um. Í glufum finnast leiðir sem við getum rakið okkur eftir og þannig haldið áfram inn í glampandi heill og glimrandi hamingju góðs samspils rýmis og tíma. Suðsuðvestan vindhviða ber okkur inn í þyngdarleysi hins óþekkta þar sem við dveljum um stund.

Nánari upplýsingar um feril Ástu Ólafsdóttur má finna á www.umm.is